Innlend verkefni
Verkefni Dansverkstæðisins á innlendum vettvangi eru fjölbreytt og margvísleg. Dansverkstæðið sinnir faglegri þróun og stuðningi við listafólk með vinnustofum og námskeiðum af ýmsu tagi. Sýningaröðin Dansárið á Dansverkstæðinu ásamt líflegri barna- og fjölskyldudagskrá stuðla að auknum sýnileika dansins og aðgengi almennings að danslistinni. Mörg verkefni eru liður í að styrkja innviði danslistarinnar og þar er Dansverkstæðið í samstarfi við aðrar listgreinar, menningarstofnanir, skóla og hátíðir.

Sumarvinnustofur
Danslistafólk á aldrinum 20-35 ára á kost á sumarvinnustofu í júlí ár hvert. Vinnustofudvölinni fylgir verkefnisstyrkur og fagleg endurgjöf í sköpunarferlinu. Dvölinni á Dansverkstæðinu lýkur með sýningu á afrakstri sumarsins.

Vinnustofur - verk fyrir börn
Árlega er valinn danslistamaður eða -hópur til að vinna að dansverki fyrir börn. Vinnustofu-dvölinni fylgir verkefnisstyrkur. Verkefnið er í samstarfi við ASSITEJ sem veitir listræna ráðgjöf í sköpunarferlinu. Það verk sem verður til í vinnustofunni er sýnt á sviðslistahátíð ASSITEJ, Unga.
.jpg)
Barna- og fjölskyldudagskrá
Dansverkstæðið skipuleggur barna- og fjölskyldudagskrá á Dansverkstæðinu. Markmiðið er að auka aðgengi barna og fjölskyldna að danstengdum viðburðum og styðja við og veita listafólki vettvang og tækifæri til þess að þróa verkefni fyrir börn og ungmenni.

Choreographic Happy Hour
Vettvangur fyrir danslistafólk til að deila hugmyndum og verkum í vinnslu á sviði. Eftir sýningu er rými fyrir umræður og endurgjöf. Fyrst og fremst er þetta tækifæri til að fagna sköpunargleðinni og dansinum. Choreographic Happy Hour er að jafnaði einu sinni á önn.

Samstarf við RDF
Samstarfsverkefni Dansverkstæðisins og Reykjavik Dance Festival vinna saman að verkefninu Danshúsið, með það markmið að efla og samnýta innviði, þekkingu og fjármagn á sem hagkvæmastan hátt svo hægt sé að styðja enn betur við hina framúrskarandi fagsenu dansins á Íslandi.

Dansdagar
Dansdagar er samstarfsverkefni Dansverkstæðisins og Íslenska dansflokksins. Markmiðið er að bjóða upp á spennandi námskeið og samveru fagfólks í dansi.

Alþjóðlegi dansdagurinn
Alþjóðlegi dansdagurinn er 29. apríl. Dansverkstæðið, Íslenski dansflokkurinn og Félag íslenskra listdansara sameina krafta sína til að halda upp á daginn.
24/7
24/7 er samsköpunarsmiðja danslistafólks og listafólks í öðrum greinum. Í 24/7 eru mynduð pör: danshöfundur/dansari og annars konar listamaður. Hvert par fær eina viku til að kynnast, prófa sig áfram og skapa eitthvað frá grunni. Markmið verkefnisins er að skapa ný tengsl og opna fyrir nýjar leiðir í samstarfi og sköpun.

Dansnet Ísland
Markmið Dansnets Íslands er að tengja listafólk, menningar-stofnanir og samfélög með sýningum og námskeiðum um land allt og skapa ný tækifæri til þátttöku, atvinnu og menningar-legrar uppbyggingar. Verkefnið er á þróunarstigi.
Iceland Dance Showcase
Dansverkstæðið er samstarfsaðili Sviðslistamiðstöðvar, Reykjavík Dance Festival, Íslenska dansflokksins og Íslandsstofu í þessu verkefni, sem hefur það markmið að efla alþjóðlegan sýnileika og dreifingu íslenskra dansverka. Viðburðurinn fer fram innan ramma Reykjavík Dance Festival 11.–15. nóvember 2026.





_edited_edited_e.jpg)