Um Dansverkstæðið
Dansverkstæðið hefur verið heimili og hjarta íslenskrar danslistar allt frá stofnun þess árið 2010. Það gegnir lykilhlutverki í innviðum listgreinarinnar og er eini samastaður sjálfstætt starfandi danslistafólks á Íslandi. Dansverkstæðið er ekki aðeins húsnæði heldur burðarás í uppbyggingu heillar listgreinar, miðpunktur og flaggskip íslenskrar danslistar þar sem faglegt samfélag verður til, þekking flyst á milli kynslóða og ný verkefni fæðast.
Dansverkstæðið hýsir jafnframt starfsemi lykilaðila í danslist og öðrum sviðslistum, þar á meðal Reykjavík Dance Festival, Félag íslenskra listdansara og ASSITEJ barnamenningarhátíð, auk þess sem félög á borð við Sviðslistasambands Íslands og Félag íslenskra leikara og sviðslistafólks nýta aðstöðuna fyrir fundi og verkefni.
Árlega ræður Dansverkstæðið til sín tugi danslistafólks til að leiða þjálfunartíma, námskeið og veita faglega ráðgjöf, sem styrkir faglegt umhverfi greinarinnar og skapar atvinnu- og þróunartækifæri. Auk fagfólks sækir almenningur í auknum mæli sýningar og viðburði á vegum Dansverkstæðisins. Gott aðgengi tryggir jafnframt þátttöku fatlaðs fólks og undirstrikar hlutverk Dansverkstæðisins sem aðgengilegs og mikilvægs innviðar í íslensku menningarlífi.

Opnunarhátíð á Hjarðarhaga 47, 2019

Hreiður
Við erum griðastaður fyrir hæfileika og forvitni sem stuðlar að uppbyggingu, miðlar þekkingu, nærir listamanninn og félagsandann.
Brú
Við tengjum einstaklinga og hópa við samfélagið og heiminn.
Brú milli míkró og makró.
Rödd
Með rödd okkar höfum við áhrif, miðlum þekkingu og sköpum samtal.
Hringiða
Við erum rými fyrir kreatíft kaos.
Þessi grunngildi Dansverkstæðisins voru samþykkt á stefnumótunarfundi í febrúar 2016
Stjórn og starfsfólk
Stjórn Dansverkstæðisins 2026:
Rósa Ómarsdóttir, formaður
Bjartey Elín Hauksdóttir
Sigurður Arent Jónsson
Snædís Lilja Ingadóttir
Valgerður Rúnarsdóttir
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, varamaður
Heba eir Kjeld Jónasdóttir, varamaður
Steinunn Ketilsdóttir, framkvæmdastjóri
Ólöf Ingólfsdóttir, verkefnastjóri
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið styður Dansverkstæðið


Reykjavíkurborg
styður Dansverkstæðið

Erasmus+ áætlun Evrópusambandsins
styður sérverkefni Dansverkstæðisins








