Dansverkstæðið er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi bæði sem gestgjafi og sem brú fyrir íslenskt danslistafólk. Aðild að samstarfsnetum og margvíslegum verkefnum opnar dyr út í heim, eflir tengslamyndun og stækkar atvinnusvæði listafólks.
keðja
Keðja er Norður-Evrópskt samstarfsnet sem vinnur að sjálfbærara umhverfi og aðferðum í listdansi. Saman búum við til opna fundi fyrir listamenn og samtök til að koma saman sem jafningjar, deila hugmyndum, þekkingu og læra saman.
Studiotrade
Studiotrade er evrópskt samstarfsnet danshöfunda og stofnana. Það skipuleggur skipti á vinnurými fyrir rannsóknir og sköpun danslistafólks og opnar dyr að nýjum mörkuðum og alþjóðlegu samhengi.
Island Connect
Island Connect er samvinna sjö stofnana í sviðslistum sem bjóða upp á listamannadvöl og vinnustofur. Allar stofnanirnar eru staðsettar á eyjum í mismunandi löndum Evrópu.