top of page

Sumarvinnustofur

Danslistafólki á aldrinum 20 - 35 ára býðst vinnustofudvöl á Dansverkstæðinu í júlí ár hvert. Markmið vinnustofunnar er að veita tveimur umsækjendum tíma, rými og hóflegan styrk til að vinna að nýju verkefni. Verkefnið getur verið í formi rannsóknar, þróunar eða sköpunar á nýju verki. Hægt er að sækja um sem einstaklingur eða hópur. Í lok vinnustofunnar er húsið opnað almenningi og afrakstur vinnustofunnar kynntur. Starfsfólk Dansverkstæðisins býður fram faglega ráðgjöf og stuðning bæði á meðan vinnustofunni stendur og eftir að henni lýkur.

Hver einstaklingur/hópur fær:

  • Styrk sem nýta má í efniskostnað og/eða þóknun.

  • Allt að 200 tíma í æfingasal og skrifborðsaðstöðu á Dansverkstæðinu. 

  • Ráðgjöf frá starfsmönnum Dansverkstæðisins og annarra sérfræðinga/listamanna. 

  • Ljósmyndun og upptaka frá viðburði þegar afrakstur er kynntur.

2026

Listamenn í sumarvinnustofu Dansverkstæðisins 2026: Marta Ákadóttir og Lísandra Týra Jónsdóttir.

IMG_9492 (1)_edited.jpg

Marta Ákadóttir vinnur að verkinu Vatnsbyssustríð ásamt Bertine Bertelsen Fadness og Leevi Mettinen.

Headshot_Lisandra_edited.jpg

Lísandra Týra Jónsdóttir vinnur að sóló verkefninu Op. 5: The Body Living

2025

Listamenn í sumarvinnustofu 2025: Birta Ásmundsdóttir og Anouk Jouanne. 

download.jpg

Birta Ásmundsdóttir vann að verkinu Deildin, sem skoðar fótboltamenningu frá sjónarhóli listdansins.

Dansarar á mynd: Cristina Agueda, Inga María Olsen, María Kristín Jóhannsdóttir, Bjartey Elín Hauksdóttir, Karítas Lotta Tulinius, Lena Margrét Jónsdóttir

Anouk Jouanne vann að verkinu Hardt og Godt ásamt Synne Lundesgaard.

Dansverkstæðið

Hjarðarhaga 47

101 Reykjavík 

id: 560710-0700

Join Dansverkstæðið mailing list:

© 2019 Dansverkstæðið. Proudly created with Wix.com

bottom of page